<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, júní 27, 2009

It's a wonderful world...
Í dag skrapp ég í blómabæinn Hveragerði til að sækja bíl. Stoppaði aðeins og skoðaði blóm og fólk í góða veðrinu. Skrapp í leiðinni í heimsókn í Ramsey Street.
Þegar ég keyrði í gegn um Reykjavík á leiðinni heim varð ég vitni að sotlu skemmtilegu. Ég sá gamla konu sitja í grasinu og göngugrindin hennar við hliðina á henni. Maður á hjóli hafði stoppað, greinilega til að athuga hvort það væri allt í lagi hjá þessari gömlu konu sem sat á jörðinni, og var að tala við hana. Þegar ég keyrði framhjá sá ég að konan var skælbrosandi, með prjóna í höndunum og greinilega bara úti að njóta veðurblíðunnar og fylgjast með mannlífinu, enda sá ég hjólakallinn hjóla í burtu í því sem ég keyrði framúr þeim. Gaman að þessu!

miðvikudagur, júní 24, 2009

...and the living is easy...
Á leiðinni í vinnuna um daginn sá ég aftur konuna með köttinn og kaffibollann. Í þetta skiptið röltu þau saman um túnið á meðan hún sötraði á kaffinu sínu. Gaman að því. Pottþétt framhaldssaga sumarsins, bíð spennt eftir að rekast á þau aftur... ;)

fimmtudagur, júní 11, 2009

Summertime...
Ég skellti næstum því uppúr á leiðinni í vinnuna í morgun. Labbaði mína venjulegu leið en rakst á fyndna konu á leiðinni. Hún kom gangandi frá húsunum hægra megin við göngustíginn sem ég labba alltaf, gekk þvert yfir hann og yfir á grænt svæði sem er hinum megin við hann. Það fyndna var að hún var með hvítan kött undir öðrum handleggnum og kaffibolla í hinni höndinni...

miðvikudagur, júní 03, 2009

Hjólandi vitlaus...
Dagur þrjú á hjólinu og ég hef ekkert, ég endurtek, ekkert þol. Bannað að gefast upp, bannað að gefast upp! (ein að reyna að telja í sig kjark... haha...) Það er svosem engin vegalengd heldur sem ég er að hjóla, bara í og úr vinnu svona til að byrja með, en nóg getur það nú tekið á...
Var svo á röltinu fyrr í kvöld þegar tveir hjólarar fóru fram úr mér. Það væri í sjálfu sér ekkert fréttnæmt nema fyrir það að þessir hjólarar voru ekki bara að hjóla... Fyrst hjólaði fram úr mér strákur með aðra hönd á stýri. Hin var föst við annað eyrað og sími þar á milli. Nokkrum metrum seinna hjólaði stelpa fram úr mér, ansi skrykkjótt, líka með aðra hönd á stýri. Hin var upptekin við að veiða sígarettu upp úr fínu sígarettuveski. Sígarettan rataði í munninn og veskið í vasann og þá tók hún upp kveikjara og fór að reyna að kveikja í sígarettunni. Það gekk greinilega hálf brösulega á ferð, hún hjólaði allavega svo skrykkjótt að ef ég hefði ekki vitað hvað hún var að gera hefði ég haldið að hún væri drukkin. Hún gafst þó upp á endanum og stoppaði hjólið á meðan hún kveikti í rettunni, hjólaði svo aftur af stað með rettuna í kjaftinum. Magnaður andskoti...

þriðjudagur, júní 02, 2009

Fljúga hvítu fiðrildin...
Það er greinilega komið sumar. Fiðrildin í maganum eru vöknuð og farin að kitla mig. Verst bara hvað ég er kítlin... Mér finnst þetta þess vegna ekkert allt of gott... Svo hræra þau upp í öllu og láta mig fá einhverjar grillur í hausinn. Ég fer að spá og spökúlera og láta mig dreyma. Sem er í sjálfu sér ekkert svo slæmt, ég verð bara hálf ringluð af öllum hringjunum sem hugsanirnar og hugmyndirnar fara í... Á sko alveg fullt af góðum hugmyndum. Vantar bara að finna leið til að hrinda þeim í framkvæmd...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?