fimmtudagur, janúar 12, 2012
Símamálið fræga? Neeee
Ég virðist vera á einhverjum "hit-list" á meðal úthringjara hjá fyrirtækjum. Ég hef varla undan að svara tryggingaráðgjöfum og tilboðum frá hinum og þessum blaðaútgáfum og símafyrirtækjum. Í kvöld hringdi svo í mig ung
sunnudagur, janúar 08, 2012
Tiltekt
Það er greinilega ýmislegt sem þarf að laga og breyta og uppfæra hérna og svosem ekki skrýtið þegar ég hef ekki snert þetta í næstum tvö ár... Ég held ég ætli að halda áfram að fikta í þessu og sjá hvort ég hrökkvi ekki bara aftur í gang með þetta. Það gæti samt alveg tekið smá tíma... ;)

Kjörgengi?
Ég fór í göngutúr í gær. Svosem ekkert skrýtið við það þar sem ég á ekki bíl. En þessi gönguferð var sko ekkert grín, þetta var hreinlega lífshættulegt ferðalag. Ég gat valið um að ganga á göngustígum sem voru flughálir og ósaltaðir/sandbornir, ganga á götunni, og þá á miðri götunni því pollarnir meðfram ruðningunum voru ekki mjög freistandi eða að ösla í gegnum rennblautan snjóinn á milli götunnar og göngustígsins og príla í ruðningunum þar sem ekkert pláss var annars. Á meðan ég brasaði þetta hugsaði ég með mér að þetta væru sko ekki kjöraðstæður fyrir gangandi vegfarendur, og datt þá í hug orðið kjörgengi. Já, það var svo sannarlega ekkert kjörgengi í gær...