<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, júlí 27, 2007

Það er að kveikna í...
Nei, ekki er það nú alveg svo slæmt. Í gærkvöldi lenti ég engu að síður tvisvar í þeirri aðstöðu að koma í veg fyrir bruna. Já, ekki einu sinni heldur tvisvar! Og í bæði skiptin í eða við heimili mitt.
Ég fer ekkert í felur með það að ég bókstaflega hata það að strauja. Ef ég slysast til að versla mér flík sem reynist svo þurfa að strauja þá kem ég því þannig fyrir að ég nota hana aðeins þegar ég er að fara eitthvað með foreldrum mínum, helst heiman frá þeim, því þá virðist flíkin strauja sig sjálf ef ég legg hana á strauborðið... Ansi hentugt sko... Ég á nú samt alveg strauborð og straujárn, meira að segja tvö takk! En það er deginum ljósara að blessað strauborðið (sem ég b.t.w. keypti á þúsundkall í rúmfatalagernum fyrir mörgum árum) hefur ekki verið oft notað. Ég komst allavega að því í gærkvöldi (hefði átt að vera löngu búin að komast að því þar sem það hefur verið í minni eigu í þó nokkurn tíma), þegar ég ætlaði að flýta aðeins fyrir mér í föndrinu með smá trikki, að það er barasta ónothæft nema með talsverðu fifferíi. Ég semsagt lagði straujárnið beint á strauborðið og viti menn... strauborðið (það er að segja efnið á strauborðinu) barasta bráðnaði saman við straujárnið! Ég var ekki lengi að rífa straujárnið úr sambandi og pakka saman strauborðinu, enn sannfærðari en áður um að straujárn væru verkfæri djöfulsins...
Við hlógum talsvert að strauborðsævintýrinu, ég og gestur kvöldsins. Þegar kvöldgesturinn fór svo heim (það er reyndar umdeilanlegt hvort það var kvöld eða nótt því klukkan var orðin tvö) fundum við einhverja brunalykt úti í garði hjá mér. Við nánari athugun komumst við að því að við vorum um það bil að starta skógareldi hjá dauðu rósinni í pottinum á pallinum hjá mér. Já, sígarettu hafði verið stungið í moldina og greinilega ekki drepist almennilega í henni. Glóðin var því búin að fá að krauma í skraufþurri moldinni í talsverðan tíma og lýsti orðið upp yfirborð hennar í pottinum. Það var ekki fyrr en við vorum búin að hella um tveimur lítrum af vatni í pottinn að það hætti að heyrast svona "kviss" hljóð frá honum. Mjög svo athyglisverð upplifun (ég vissi ekki að það væri hægt að kveikja í mold...), en ég vil ekki vita hvað hefði gerst ef við hefðum ekki fundið brunalyktina og ég bara farið að sofa...

föstudagur, júlí 20, 2007

Dæmigert?
Alveg er þetta magnað. Bongóblíða búin að vera hérna í borginni í meira en mánuð. Svo byrja ég loksins í sumarfríi og hvað gerist? Jú, það byrjar að rigna. Og veðurspáin næstu vikuna? Jú, skýjað og rigning. Ef þetta er ekki dæmigert fyrir mína heppni (ja, eða ekki heppni), þá veit ég ekki hvað...

sunnudagur, júlí 15, 2007

Hvítlaukur við vindgangi?
Já, það er sko ekki öll vitleysan eins. Ég viðurkenni reyndar fúslega að ég væri alveg til í að smakka náttúrulega hvítlaukslegið kjöt á grillið... ;) Ég er aftur á móti ekki alveg eins viss um að ég myndi fíla hvítlauksmjólk. Hins vegar er mér alveg skítsama hvort kýr eru andfúlar eða ekki, ég hef engan áhuga á lifandi kúm. Hitt er svo annað mál, að ef ÉG færi að nærast á hvítlauksblönduðu fóðri hefði það ekki önnur áhrif en þau að ég myndi skjótast til tunglsins...

föstudagur, júlí 13, 2007

Það sem ég lendi ekki í...
Ég fór í "mjólkurbúðina" um daginn. Það er í sjálfu sér ekkert svo merkilegt. Ja, reyndar var þetta þegar ég keypti græna Woody´s-inn fræga... en það er annað mál.
Allavega, í þetta tiltekna skipti horfði strákurinn sem afgreiddi mig óeðlilega lengi aftan á kortið sem ég borgaði með. Hann horfði reyndar ekki bara óeðlilega lengi, heldur glotti hann illilega á meðan. Þess vegna átti ég svona frekar von á því að hann færi að kommenta eitthvað á 11 ára gamla (og mjög svo hallærislega) myndina af mér þegar hann loksins opnaði á sér munninn. En nei, ekki var ég svo heppin. Reyndar gat ekkert búið mig undir það sem ég átti í vændum. Gaurinn tilkynnti mér nefnilega, hátt og skýrt, að ég ætti sama afmælisdag og fyrrverandi kærastan hans! Við værum meira að segja fæddar sama ár! Bætti svo við, frekar smeðjulega, að það væri nú aldrei að vita nema við ættum eftir að hittast aftur...
Nei takk, jakkedíjakk!
Af hverju get ég ekki bara lent í einhverju eins og stelpan í kókauglýsingunni?

fimmtudagur, júlí 12, 2007

Eraðfaraðmeikaða...
Það er bara allt að ske. Fékk gríðarlega bleikt egóboost á þriðjudaginn. Já, það má með sanni segja að maður uppskeri eins og maður sái og að það borgi sig að vinna vinnuna sína almennilega! Ég er barasta enn einhvers staðar uppi í skýjunum sko.
Ég held líka, svei mér þá, að þetta gríðarlega bleika egóboost hafi gert mér alveg svakalega gott á mörgum sviðum. Ég hef allavega háleit markmið og stór plön fyrir næstu vikur og það er aldrei að vita nema ég sé barasta að fara að "meikaða"... En meira um það síðar...

þriðjudagur, júlí 03, 2007

Rafmögnuð brunarúst
Já, það er ég. Ég eyddi semsagt aðeins of miklum tíma í aðeins of fáum fötum í aðeins of mikilli sól síðustu daga. Ekki svo gott. Er dáldið mikið rauð, eiginlega bara soldið eins og blikkandi viðvörunarskilti. Alls ekki svo gott. Önnur öxlin samt verst, hún heimtaði ferð í apótekið í gær þar sem ég fjárfesti í kælipoka og rándýru brunageli sem ég makaði á mig eins og mér væri borgað fyrir það á milli þess sem ég gekk með kælipokann á öxlinni. En þetta er allt að koma til, er allavega farin að geta sofið án þess að vakna á klukkutíma fresti til að bera á mig eða kæla brennda líkamshluta á annan hátt.
Svo þar sem ég er brennd og reyni því að forðast sólina í bili þá eyddi ég deginum (eftir vinnu sko) og kvöldinu í að tengja ljósin sem ég keypti fyrir lööööngu síðan. Allskonar mis skemmtilegt föndur sem fylgdi þessu. Er búin að baksa hérna með hamar, skæri, allskonar skrúfjárn og og enn fjölbreyttari skrúfur. Enn hefur mér samt ekki tekist að slasa mig á verkfærunum, engin fljúgandi skrúfjárn í þetta skiptið og ekkert "stuð" heldur, ótrúlegt en satt... Á reyndar enn eftir að klára þetta þannig að það er ekki öll von úti... ;)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?